http://www.websiteoutlook.com

Þessi tengill er veffang þjónustufyrirtækis sem mælir gildi vefsíðna eftir heimsóknum og lestri efnis - þ.e. eftir notkun þeirra. Þú getur notað hann til að mæla gildi vefsíðu þinnar eða einhvers fyrirtækis sem þú þekkir. Þjónustan er þér að kostnaðarlausu.
Niðurstaða fyrir Vefsíðu Leós er athyglisverð og einnig samanburður á 10 vefsíðum á Íslandi á sviði bíla og tækni.

1. Toyota-umboðið P. Samuelsson ehf. www.toyota.is (3241)
2. Vefsíða Leós, www.leoemm.com (2920)
3. Hekla ehf. www.hekla.is (2854)
4. Ingvar Helgason ehf. www.ih.is (27590)
5. Bílgreinasambandið, www.bgs.is (2387)
6. Félag ísl. bifreiðaeigenda, www.fib.is (2292)
7. Ferðaklúbburinn 4x4, www.f4x4.is (2263)
8. Bernharð ehf. www.bernhard.is (2197)
9. Bílabúð Benna, www.benni.is (2066)
10. Brimborg ehf. www.brimborg.is (1913)

Ath. Listinn hér að ofan er síðan í mars 2009 og hefur tekið breytingum síðan, bæði uppgefið gildi einstakra vefsíðna og innbyrðis röðun. Gildið fyrir Vefsíðu Leós (eins og sýnt er í hægri dálki á aðalsíðu er uppfært reglulega og var t.d. US $ 2248 þann 31. júlí sl. Vefsíða Leós er íslensk útgáfa á bandarískri vefsíðu sem hýst er hjá Pae Tec Communications Inc. í Bethlehem, Pennsylvania 18017, USA. Vefsíðan stenst kröfurbandarískra alríkislaga um upplýsingamiðlun, er undir eftirliti US DOI og nýtur verndar bandarískra höfundarréttarlaga (U.S. Copyright law) sem eru skýrari, strangari og afdráttarlausari en t.d. íslensk.

----------------------------------------------------------------------------------------

Hvaða 10 bílar eru efstir á lista yfir þá sem Danir kaupa ekki?
Sala nýrra bíla hefur dregist verulega saman í Danmörku en um 5000 bílar höfðu selst fyrstu 2 mánuði ársins. Þessi listi sem danska blaðið Politiken birti nýlega (mars 2009) yfir bíla sem eru hættir að seljast í Danmörku hefur vakið athygli. Allir bílarnir á listanum eru af árgerð 2009 og efst sá sem erfiðast er að selja:

1. Fiat Croma
2. Renault Kangoo
3. Fiat Multipla
4. VW Fox
5. Hummer H3
6. Kia Magentis
7. Volvi S40
8. Kia Proceed
9. Mercedes R-class
10. Toyota RAV4

Netfang höfundar

Aftur á aðalsíðu