|
Umræðuhornið
- Skoðanir og greinar um málefni líðandi stundar.
Af
Vefsíðu Leós - www.leoemm.com
Varnir
gegn loftmengun er fyrst og fremst fjárhagslegt vandamál
íslenskra stjórnvalda
þótt
það megi ekki hafa hátt um það ......
Hvað
eru 900 kæfðir minkar á milli vina?
Dýravernd
er hluti af menningunni. Hins vegar er umhugsunarvert að stéttaskipting
virðist ráðandi gagnvart dýravernd hérlendis
.....
Gagnabankinn
- ýmsar bilanir í bílum og ráð við
þeim
,,Smalamennskan"
á keflavíkurveginum.
Í þessari
grein, sem birtist í Morgunblaðinu 13. febrúar 2002, er vakin athygli
á upphaflegum tilgangi breikkaðra axlna á Keflavíkurveginum.
Vafasamar
vetnisfjaðrir
Grein
sem birtist í Morgunblaðinu í febrúar 1999
þegar mér ofbauð bullið í Hjálmari
Árnasyni - sem þá var þingmaður - en
er núna bara venjulegur streðari sem er frekar óvenjulegt
um fyrrverandi þingmenn sem yfirleitt ekkert fyrirtæki
vill ráða í vinnu. Hjálmar er annað hvort
færari en þeir flestir eða með betri sambönd
- en söm var vetnisdellan!
,,BESSERWISSER"
OG 270 ÞÚSUND SÉRFRÆÐINGAR
Þeir sem
alltaf hafa þagað og aldrei skrifað meira en nafnið sitt (og dagsetningu),
geta sjálfsagt hælt sér af því á gamalsaldri að hafa aldrei orðið
uppvísir að því að hafa haft rangt fyrir sér, jafnvel aldrei orðið
sér til skammar, að minnsta kosti í annarra augsýn - aldrei afhjúpað
,,leyndarmálið" að þeir kunna ekki réttritun út í hörgul fremur
en aðrir venjulegir Íslendingar; aldrei misminnt neitt né orðið á
að treysta heimildum sem síðar reyndust vafasamar. Ég tel mig heppinn
fylli ég ekki þennan flokk. Stundum
hefur mér orðið svona karakter hugstæður þegar viðbrögðin sem blaðagrein,
þar sem reifuð er ný hlið á máli, eru þau ein að nöldrað er undan
rangt stafsettu nafni á erlendri borg eða undan ártali sem hefur víxlast:
Sem sagt tittlingaskítur.
Það
íslenskasta af öllu íslensku (fyrir framapotara) er að ,,gelta fyrir
húsbóndann
Hve
öruggir eru bílar?
Um þessar
mundir (í byrjun apríl 1999) er verið að fullyrða (en þó með hálfkveðnum
vísum) í fjölmiðlum um öryggi bíla og öryggisbúnað. Ályktanir eru
m.a. byggðar á tölfræðilegum gögnum lækna. Faglega þekkingu á bílum
vantar í umfjöllunina. Útkoman er eftir því; - mikið af upplýsingum
sem lítið gagn er að. Hér fjallar Leó M. Jónsson 1) um
hættulegustu bílana (tegundir, árgerð og ástand) en jafnframt um ástæður
umferðarslysa og hvernig aðrar þjóðir hafa farið að því að auka öryggi
í umferðinni.
Hin
forboðnu málefni íslensks samfélags
Ákveðin
mál á ekki að ræða opinberlega á Íslandi. Um þau verður trauðla eða
alls ekki opinber eða almenn umræða - þau þola ekki gagnrýni eða vitræna
umfjöllun. Íslendingar eru ekki einir á báti í þessu efni: Þjóðverjar
ræða helst ekki hvað þeir eða þeirra höfðu fyrir stafni á stríðsárunum
frekar en Svíar sem auk þess ræða ekki hergagnasöluna sem þeir lifa
enn á); Ameríkanar vilja helst ekki muna eftir Indiánum eða McCarthy-tímabilinu
o.s.frv. o.s.frv. Höfundur hefur haft blaðamennsku að aðal- eða aukastarfi
sl. 30 ár og af einskærri stríðni hans er hér minnst á nokkur dæmigerð
íslensk ,,tabú":
FRUMSKÓGUR
BÍLATRYGGINGANNA
Nokkuð
reglulega boða þau 3 tryggingafélög, sem hafa skipt með sér markaðnum
hérlendis í bróðerni, hækkanir á iðgjöldum bílatrygginga. Ástæðan
er sögð vera aukin tjónatíðni og dýrari tjón. Þessi tryggingafélög
eiga það sameiginlegt að hafa safnað eignum undanfarna áratugi og
eru á meðal ríkustu fyrirtækja landsins. Nú, í apríl 2000 virðist
vera komið að enn einni hækkuninni og eins og oft áður tala þessi
3 tryggingafélög til okkar bíleigenda eins og við séum bjánar.
Og
nú skal Íslandssagan lúta lögmálum markaðarins!
Fíflagangurinn
í kringum Íslending, trébát sem á að vera eins og þeir bátar sem talið
er að hafi verið notaðir á landnámsöld, virðist engan endi ætla að
taka. Ástæðan er góðar viðtökur sem báturinn hefur fengið á austurströnd
Bandaríkjanna - þar sem Íslendingur er kynntur sem víkingaskip.
|