| Skoðun
Leós M. Jónssonar:
Það íslenskasta af öllu íslensku (fyrir framapotara) er að ,,gelta fyrir húsbóndann Gelt vegna öfundar: Hefurðu séð Hannes Hólmstein nýlega tala um að nauðsynlegt sé að leggja niður embætti forseta Íslands á næstunni? Hannes er, eins og oft áður, í hlutverki íslenska rakkans sem geltir þegar hann heldur að það þóknist húsbóndanum. Húsbóndi Hannesar og átrúnaðargoð er Davíð Oddson. En Hannes Hólmsteinn er ekki einn á báti: (Þessari fullyrðingu hefur Hannes Hólmsteinn mótmælt með bréfi til höfundar og birtist það hér að neðan). Þetta er þekkt aðferð íslenskra framapotara til að koma ár sinni fyrir borð. Þeir sem gelta af hvað mestri list fyrir húsbóndann uppskera oft ríkulega. Víða erlendis er litið niður á svona týpur og háttarlag þeirra álitið lúalegt og ógeðfellt. Það er enginn sá galli við embætti forseta Íslands sem ekki hefur verið á því undanfarna áratugi. En Davíð Oddson þolir ekki að Ólafur Ragnar skyldi hafa unnið kosningu til embættisins jafn glæsilega og raun bar vitni: Þetta er íslensk öfund - eitt sterkasta aflið í okkar þjóðfélagi. Gelt af misskilningi: Það fer oft saman, listin að vera leiðinlegur og að kunna að gelta fyrir húsbóndann. Ég hef t.d. haldið því fram að sé einstaklingur nógu djöfull leiðinlegur séu því nánast engin takmörk hve hátt hann getur klifrað í metorðastiga íslenska Kerfisins. Nefna mætti mörg dæmi um að litlir karlar og miklar leiðindaskjóður hafi gelt fyrir húsbóndann og hlotið fyrir meiri umbun en þeir réðu við: Ráðning Heimis Steinssonar sem Útvarpsstjóra um árið er, að mínu áliti, eitt af neyðarlegri dæmum um það, sérstaklega vegna þess að það kostaði Ólaf Einarsson ráðherraembætti - en hann hélt sig hafa allt sitt á hreinu (og hafa gelt fyrir sinn húsbónda), Kerfið, þegar hann réði þann sem hann taldi greinilega leiðinlegastan af öllum umsækjendum um stöðuna. Geltandi biskup: Jafnvel biskupinn geltir fyrir húsbóndann: Ekki þurfti Davíð annað en að fara í fýlu út af smásögu, sem starfsmaður Biskupsstofu skrifaði í frítíma sínum og fékk birta í Lesbók Morgunblaðsins, að biskupinn kippti upp um sig pilsunum og sparkaði þessum starfsmanni sínum. Helsta ástæða þess að Davíð fór í fýlu mun reyndar vera sú að smásagan var allt í senn; neyðarlega háðsk, þrælgóð og fyndin - en eins og margir vita þá telur Davíð Oddson sig hafa einkarétt á slíku, og ekki síst þegar hugmyndinni er stolið eins og var með Matthildi hér um árið (þeir kumpánar stálu hugmyndinni að Matthildi frá tveimur sænskum leikurum, þeim Hasse Alfredson og Tage Danielsson en þar hét þessi þáttur ,,Mosebacke Monarki") Gelt fyrir Flugleiðir: Og svo má taka dæmi þar sem næstum sló í bakseglin með óvæntum afleiðingum svo að minnstu munaði að ,,hinir ósnertanlegu" fengju skellinn en ekki þeir sem hann var ætlaður. Hver man ekki eftir því þegar ein smásálin hjá Flugmálastjórn fór að gelta fyrir húsbóndann (Flugleiðir, sem er að verða eitt óvinsælasta fyrirtæki landsins) hér um árið, og sá til þess að kjaftasögu var lekið í bresku Flugmálastjórnina um ,,vafasama" meðhöndlun varahluta hjá Atlanta flugfélaginu, sem, eins og allir vita rekur sínar viðhaldsstöðvar erlendis til að hafa vinnufrið fyrir útsendurum Flugleiða í Kerfinu og verkalýðsfélögum. Auðvitað brugðust bresk flugmálayfirvöld við upplýsingunum eins og þau kæmu frá heiðarlegu fólki (en ekki eftir krókaleiðum frá íslenskum flugmálayfirvöldum á mála hjá Flugleiðum) og kyrrsettu allan flota Atlanta á meðan málið var kannað. Litlu munaði að þetta ,,gelt" yrði afdrifaríkara fyrir Flugmálastjórn en fyrir Atlanta því um líkt leiti höfðu vélar frá Flugfélagi Íslands í innanlandsflugi orðið að nauðlenda þrisvar með örstuttu millibili vegna bilana sem allt benti til að stöfuðu af ófullnægjandi vinnubrögðum viðhaldsdeildar Flugfélags Íslands - ef ekki hreinu klúðri. Þegar spurt var, í Morgunblaðinu, hvers vegna flugvélar Flugfélags íslands hefðu ekki verið kyrrsettar vegna þessarra endurteknu bilana, sem voru miklu alvarlegra mál en bókhald vegna varahluta hjá Atlanta, var svarið: Það voru ekki við sem kyrrsettum vélar Atlanta heldur bresk flugmálayfirvöld. Og sveiattan, segir maður bara, - þar slapp enn einn íslenskur skítalabbinn fyrir horn eftir að hafa gelt fyrir húsbóndann. Gelt fyrir Kolkrabbann: Vísitölur eru falsaðar á Íslandi. Það er meira að segja talið svo sjálfsagt að hafa fé af almenningi með því að falsa vísitölur að pólitíkusum finnst annað hrein sveitamennska og telja slíka fölsun jafnvel á meðal greina pólitískrar hagfræði (sem auðvitað á ekkert skylt við venjulega hagfræði eða vísindi yfirleitt - ekki frekar en verklagsreglur bandarísku Mafíunnar). Forstöðumaður Hagfræðistofnunar Háskóla Íslands hefur gerst svo djarfur að hreyfa þessu máli í fjölmiðlum. Samstundis spruttu upp varðhundar með miklu felmtri til að kveða manninn í kútinn; m.a. Hagstofustjóri sá ástæðu til þess að gelta fyrir húsbóndann í fjölmiðlum (og vara almenning við því að trúa ,,svona mönnum"). Hérlendis er ákveðinn klúbbur manna sem hafa eignast veiðirétt á almenning með samtryggðri pólitískri spillingu. Þeim þykir ekki nema sjálfsagt sport að skipta með sér verkum við að okra á þessu fólki sem þeirra á milli gengur undir heitinu ,,pöpullinn". Frjáls samkeppni, sem klúbbmeðlimir japla sífellt á, er í raun ekkert annað en heimild sem þeir vilja hafa til þess að okra ,,eftir þörfum" á landslýð og skipta með sér fengnum. Svo skammta þeir, í krafti samtryggingarinnar, pöpulnum vinnulaun frá 63 þús. kr. á mánuði (og kalla það taxta samkvæmt kjarasamningum!) en sjálfum sér milljón á mánuði og frían jeppa. Meira að segja verkalýðsforkólfar mæta í kjaftaganginn í Karphúsinu á 4-5 milljón króna montjeppum! Þetta eru mennirnir sem hafa gert íslenskt þjóðfélag að ,,glæsilegustu þrælabúðum" Evrópu eftir stríð. Svona mætti halda lengi áfram. En hér látum við staðar numið að sinni. En ef þú ert sérstaklega leiðinleg persóna er ómögulegt að vita hve langt þú gætir náð ef þú æfðir þig í að ,,gelta fyrir húsbóndann", hver svo sem hann er. ------------------------------------------ Leó M. Jónsson! Ég rakst á skrif þín um mig á netsprangi á dögunum. Þar heldur þú því fram, að ég sé á móti embætti forseta Íslands vegna andúðar minnar eða vina minna á Ólafi Ragnari Grímssyni. Mig langaði aðeins til að benda þér á það, að ég setti fram þá hugmynd, að leggja ætti niður embætti forseta Íslands, löngu áður en Ólafur Ragnar Grímsson varð forseti. Meðal annars má lesa um það í litlu riti, sem ég gaf út þegar árið 1987, fyrir fjórtán árum, og bar heitið Stjórnarskrármálið. Þessi hugmynd er því alveg ótengd Ólafi Ragnari og persónu hans. Hannes Hólmsteinn Gissurarson.
|