Leó M. Jónsson vélatæknifræðingur:

Hyundai Starex 4x4 - 7 sæta fjölskyldujeppi

Hyundai Starex er fjórhjóladrifinn meðlimur tegundarinnar H-1 en það er nýr fjölnotabíll á íslenska markaðnum. Hann er stærri  en ,,minivan", liprari en smárúta og jafnframt meiri fólksbíll en ,,sendibíll með gluggum". Hönnuðir Hyundai hafa skapað nýjan bíl:  H-1 sem er  fjölskyldubíll sem jafnframt er búinn kostum atvinnutækis og vinnubíls.  

Suður-Kórea er orðið stórveldi í bílaframleiðslu. Stærsti framleiðandinn, Hyundai (borið fram ,,Sjondæ"), hóf samsetningu bíla skömmu upp úr 1960 en hóf eigin bílaframleiðslu 1975 sem hefur aukist ár frá ári. Hyundai er nú stærsta iðnaðarsamsteypan í Suður-Kóreu og jafnframt eitt af stærstu fyrirtækjum í Suðaustur-Asíu.

Í Suður-Kóreu hefur skapast ákveðin hefð í bílaframleiðslu sem byggist á því að nýta kostnaðarsama hönnun og vöruþróun stærstu framleiðenda á flóknari hlutum bíla svo sem bílvélum, gírkössum og öðrum drifbúnaði. Í Suður-Kóreu eru m.a. framleiddar vélar af tegundinni Mercedes-Benz, Opel, Mitsubishi og GM og hluti þeirra notaður í bílana sem þar eru framleiddir.

KUNNUGLEGT ,,KRAM"
Það kom mér því ekki á óvart þegar ég þóttist kannast við ýmislegt í Hyundai Starex. Þannig er dísilvélin upphaflega hönnuð af Mitsubishi og er þekktur vinnuhestur sem reynst hefur vel. Gírkassinn er sá sami 5 gíra kassi og Mitsubishi hefur notað í vinnubílnum L-200 og L-300, hásingarnar eru þær sömu og eru í MMC L-300 og millikassinn er af tegundinni Borg-Warner 13-54. Allt er þetta drifbúnaður sem Íslendingar þekkja og sem reynst hefur vel við okkar aðstæður.

H-1 Í HNOTSKURN
H-1 er frambyggður 3ja dyra með afturhlera. Grunngerðirnar eru tvær, styttri bíllinn sem er með 2810 mm hjólhafi og lengri bíllinn sem er með 3080 mm hjólhafi. Styttri bíllinn getur verið sendibíll eða með sætum fyrir 6 eða 8 farþega en lengri bíllinn með sætum fyrir 8, 11 eða 10 farþega. Um tvær vélar er að velja annars vegar 112 ha bensínvél en hins vegar 80 ha dísilvél. Bensínbíllinn fæst beinskiptur eða sjálfskiptur en dísilbíllinn beinskiptur. H-1 er afturhjóladrifinn og sem slíkur með seiglæstu mismunardrifi. Sérstök útfærsla af H-1 nefnist Starex. Hann er boðinn annars vegar með afturhjóladrifi 7 eða 9 sæta en hins vegar með fjórhjóladrifi 7 sæta.  Sá fjórhjóladrifni er styttri og hærri. Það er sá 7 manna Starex sem þessi grein fjallar um.

Einn af kostum H-1 er haganlega útfærð sætaskipan. Fyrir bragðið er á auðveldan hátt hægt að laga bílinn að breytilegum þörfum hvað varðar flutning á farþegum, farangri og þeim hlutum sem fylgja nútímafjölskyldu. Þessi hönnun er út af fyrir sig ekki nýjung. En hún gerir þennan bíl fjölhæfari og notadrýgri en ætla mætti í fljótu bragði. Það skiptir einnig máli að afturhjóladrifinn Hyundai Starex með sætum fyrir 7 og með öllum búnaði,  fæst fyrir rétt rúmlega 2 milljónir króna. Starex 4x4 með sætum fyrir 7 og túrbódísilvél kostar rúmar 2,4 mkr og má flokka hann sem frambyggðan ferðajeppa sem þolir tæknilegan samanburð við ýmsa mun dýrari lúxusjeppa á markaðnum. Verðið er því lykilatriði. 

BYGGING
Starex er grindarlaus. Þess í stað er sterkur hjólbotn byggður eins og stigi með sverum langbitum. Helstu kostir þessarar byggingar eru mikill snerilstyrkur, hægt að hafa gólf lægra og slétt og um leið sterkara og léttara. Starex er með heila hásingu að aftan og gormafjöðrun. Að framan er stutt hásing, klafi að ofan og neðan og snerilfjöðrun. Þessi hönnun er nánast orðin sígild í fjórhjóladrifsbílum. Vélin er langsum fram í og drif á afturhjólum nema ekið sé í fjórhjóladrifi. Undir vél og gírkassa er hlífðarpanna úr stáli en millikassinn er óvarinn. Úr því mætti bæta.

Þótt innra rými sé mikið í Starex er bíllinn minni um sig en ætla mætti. Starex er tæpir 4,7 m á lengd og 1,8 m á breidd. Hæðin er rúmlega 2 metrar. Hjólhaf 7 sæta bílsins er 2,8 m og eigin þyngd  2063 kg. Botnskuggi bílsins er 8,54 m² en til samanburðar má hafa að botnskuggi BMW 528 er 8,60 m² .

VÉLBÚNAÐUR
Túrbódísilvélin er með 2476 cm3 slagrými. Hámarksaflið er 80,2 hestöfl við 3900 sn/mín. Hámarkstogið er 294 Nm við 1800 sn/mín. Þetta er 4ra sílindra 8 ventla vél með yfirliggjandi kambási og tímareim. Olíuverkið er stjörnudæla frá Bosch. Þjöppunarhlutfallið er 21:1. Forhitun, sem er  hraðvirk, er með 12 volta glóðarkertum. Rafgeymir er 90 amperstunda og  alternatorinn 75 amper sem hvortveggja er vel yfir meðallagi. Þessi vél er reyndur vinnuhestur hannaður hjá MMC og skilar sínu í þessum Hyundai. Hún er þýðgengari og lágværari en margar bensínvélar.

5 gíra kassinn er einnig þrautreynt tæki hannað hjá MMC. Fyrsti gírinn er fremur lágur (3,967), sá fjórði beinn en 5. gírinn yfirgír (0,855). Borg-Warner 1354 millikassinn, sem er úr áli og keðjudrifinn (sami og 1350 sem Ford notar í Bronco II og Ranger) er með beinan háan gír og  hlutfallið 2,48 á lága gírnum. Millikassinn er fyrir hlutadrif og því ekki með læsingu.

Starex er með sterkar hásingar (kögguldrif). Drifhlutfallið er 3,909 (4,22 með bensínvélinni). Heildarniðurfærsla út í hjólnöf í 1. gír og lága drifinu er 38,42 : 1. Það er töluvert en til samanburðar má hafa að Nissan Patrol 2,8 dísill er með heildarniðurgírun 37,98.  Heildarniðurgírun, sem er margfeldið af hlutföllum 1. gírs, lága millidrifsins og drifs, er áreiðanlegur vísir um drifafl jeppa og má nota til samanburðar á getu bíla með svipað slagrými vélar.

Starex er með handvirkar driflokur á framhásingu. Umboðið breytir lokubúnaði bílanna þar sem sjálfvirkar driflokur af mismunandi gerðum virðast eiga það sameiginlegt að henta illa veðurfari og aksturaðstæðum hérlendis og hafa verið til vandræða, - hafa oft klikkað þegar mest ríður á.  Þessi breyting er því til bóta þótt henni fylgi að fara verður út úr bílnum og læsa lokunum til að fjórhjóladrifið virki. Hins vegar má skipta á milli aftur og fjórhjóladrifs á ferð (innan við 70 km/klst) en til að tengja lága drifið þarf að stöðva bílinn. Drifstillingin er gerð með hnappi í mælaborðinu. Sá ókostur fylgir handvirkum driflokum að með hnappinum í mælaborðinu er hægt að stilla á fjórhjóladrif með opnar lokur. Þá snúast framöxlarnir lausir í hjólnöfunum sem þá geta skemmst í lengri akstri jafnframt því að gefa bílstjóra falska tilfinningu fyrir auknu öryggi sem ekki er fyrir hendi. Úr þessu mætti bæta með upplýsingum, jafnvel á íslensku, en þær sem nú eru á sólskyggninu eru illlæsilegar og eiga við sjálfvirkar lokur.

Starex er ekið í afturhjóladrifinu nema þegar sérstaklega stendur á. Það er kostur því bíll sem hefur drifið á framhjólunum í 2WD-stillingu er óheppilegri til dráttar en Starex með dráttarbeisli getur dregið 1500 kg vagn (m. bremsum).

Í Starex er tannstangarstýri með vökvaaðstoð. Allir áfyllingarstútar vegna þjónustu og eftirlits eru í húddinu, greinilega merktir og aðgengilegir. Fyrsta eftirlit með vél er eftir 30 þús. km. síðan á 30 þús. km fresti og tímareim á að endurnýja eftir 90 þús. km. Í húddinu er frekar þröngt en það er nánast reglan núorðið.

FJÖÐRUN
Að framan fylgir stutta hásingin botni bílsins en ekki hjólunum. Það minnkar fjaðrandi þunga hjólanna og eykur veggripið. Þar sem stuttu hásingunni sleppir eru efri og neðri klafar. Framhjólin fjaðra með vindustöngum sem festar eru í efri klafann og liggja lárétt aftur með botni bílsins. Stangirnar eru 24 mm að þvermáli og lengdin 1165 mm. Jafnvægisstöng er þvert á milli framhjólanna en hún kemur í veg fyrir hliðarhalla. Framvagn af þessari gerð með tannstangarstýri og diskabremsum er að finna í mörgum þeirra fjórhjóladrifsbíla sem mest seljast. Helsti kostur hans er styrkur, slaglengd og veggrip í torfærum en mjúk og jöfn fjöðrun og góðir aksturseiginleikar í venjulegum akstri. Stutta hásingin og klafarnir hafa auk þess þann ótvíræðan kost að hjólin leggja betur á í beygju enda snýr þessi stóri bíll innan í hring með 11,2 m þvermáli eins og venjulegur fólksbíll af miðlungsstærð.

Að aftan er einnig þrautreynd hönnun: Heil hásing með gormklafa þvert á hásingu framan við hjól, togarma að ofanverðu, þverstag og jafnvægisstöng. Með því að hafa gorminn á klafanum framan við hásinguna en ekki ofan á henni fæst meiri slaglengd.

Þessi hönnun skilar sínu: Við fyrstu sýn mætti ætla að Starex nánast kjagaði vegna þess hve hann er hár. En það er öðru nær því hann hallar nánast ekkert í beygjum, er framúrskarandi stöðugur í akstri, nánast ónæmur fyrir hliðarvindi, engin vindhögg þótt flutningabíl sé mætt  í roki, slitrásir í malbiki hafa engin áhrif á rásfestuna en samt er þessi bíll lúsþýður. Slaglengd fjöðrunarinnar er áberandi mikil (140 mm að framan en 230 mm að aftan) sem kemur vel í ljós þegar ekið er á vondum malarvegi. Síðast en ekki síst einangrar þessi hjólabúnaður veghljóð sem er varla merkjanlegt í þessum bíl; boddíhljóð er lítið aftur í og nánast ekkert fram í.

Nú mætti ætla að svo þýður bíll myndi skvetta til afturendanum á vondum malarvegi. En það gerir Starex ekki heldur líður yfir holuklasana á fullri ferð án þess að haggast og það í afturhjóladrifinu einu. Samt eru dekkin frekar gerð fyrir malbik en möl. Þau eru 27,5 tommur að þvermáli (215/80 R15).

TORFÆRUTÆKI ?
Starex þolir samanburð við flesta grindarlausa jeppa hvað torfærueiginleika snertir. Hvað varðar drifbúnaðinn er hann jafnvel með þeim öflugri. Hins vegar segir sig sjálft að bíll með svo mikið hjólhaf fer ekki þar sem stystu jeppar fara í torfærum enda gildir lögmál málamiðlunarinnar um Starex eins og aðra bíla. Að framan skagar neðsti hluti stuðarans 700 mm útfyrir framhjólsnöf en að aftan 930 mm. Fríhorn, en það er sá bratti sem jeppinn getur auðveldlega klöngrast upp á, er því 26,6° að framan en 20,4° að aftan. Því stærra sem þetta horn er því auðveldar kemst bíllinn upp úr skorningum. Það vill oft gleymast að stærri dekk eru ekki einungis fyrir stælinn; stærri sóli eykur veggrip, meiri belgur dregur úr höggálagi og meira þvermál stækkar frihorn bíls.  

Í fljótu bragði sýnist mér auðvelt að koma 31 tomma dekkjum undir Starex. Það hækkar bílinn að vísu um 50 mm þannig að ekki verður eins auðvelt að komast inn og úr honum en það myndi auka torfærugetu hans umtalsvert, t.d. myndu fríhornin stækka um 3° og um leið minnka líkur á að bíllinn hlaði undir sig snjó og festi sig í mjög þungri færð. Þar sem öxlarnir eru 28 rillu  (eins og í Pajero) þá fást loftlæsingar frá ARB í drifin á Starex 4x4.

AFL
Þegar ég tók við bílnum fann ég fljótt að of mikill þrýstingur var í dekkjunum. Hann reyndist vera 32 pund eins og framleiðandinn mælir með en þá er greinilega miðað við hlaðinn bíl. Minnkun þrýstingsins í 28 pund var greinilega til bóta.

Dísilvél hefur þann kost umfram bensínvél að lítill sem enginn munur er á eyðslu bíls með dísilvél í lengri akstri eða borgarsnatti. Auk þess nýtir hún eldsneytið betur og er því sparneytnari en jafn stór eða öflug bensínvél. Eins og fram kemur í meðfylgjandi töflu er dísilvélin ótvírætt hagkvæmari kostur en bensínvél sé árlegur akstur 20 þúsund km. Viðhaldskostnaður dísilvélar er minni á hverja ekna 100 þús. km. en bensínvélar.

Hyundai Starex er lipur bíll í akstri og þrátt fyrir þyngdina, sem er líklega meira öryggisatriði en margur hyggur. Þetta er enginn sleði og það er fyrst og fremst að þakka líflegri vél, góðri gírskiptingu og stýri. Til að beita túrbódísilvél þannig að upptaka og seigla nýtist sem best þurfa óvanir dálitla æfingu. Það er einnig nauðsynlegt að vita að aldrei ætti að drepa skyndilega á túrbódísilvél eftir akstur, hún á að ganga lausagang í 20-30 sek. þannig að smurolían nái að kæla ásinn í forþjöppunni sem knúin er af pústinu (túrbó).

Þegar maður hefur náð að stilla saman snúningshraða, gírval og hraða má halda fullri ferð á þessum bíl í 5. gír við allar venjulegar aðstæður. Bíllinn fer á 100 km. hraða upp Kamba í 4. gír og vegna þess hve vel hann liggur á vegi þarf ekkert að slá af í kröppustu beygjunum. Og það er hægt að lulla í 4. gír. Hröðun frá 80 í 110 km/klst, t.d. við framúrakstur er viðunandi. Hámarkshraði bílsins er 160 km/klst.

Hámarkstog vélarinnar er við 1800 sn/mín. Upptakan er mest á bilinu 1500 - 2500 sn/mín. Síðan tekur við dálítið þjöppuhik en forþjappan skilar áberandi aflaukningu rétt undir 3000 sn/mín og upp yfir 4000 sn/mín. Sjálfvirkur útsláttur er við 4500 sn/mín. Snerpa 0-100 og kvartmílutími (tafla)  segir fremur lítið um viðbrögð þessa bíls. Hins vegar munu þeir sem eru vanir sendibílum í borgarakstri þekkja mælikvarðann fyrir viðbragðið 0-60, sem er nokkurn veginn spyrnan á milli umferðarljósa. Sú snerpa er 9,48 sek. hjá þessum Starex 4x4 dísil og verður því varla kvartað undan henni.

AKSTUR
Maður situr hátt í Starex. Seta bílstjórastólsins er í rúmlega eins metra hæð (1060 mm) frá jörðu. Vegna fótstiga utan á bílnum og niðurtekinna þröskulda í dyrum er gólf bílsins, sem er í 730 mm hæð, þriðja og síðasta þrepið upp og inn. Því er auðvelt fyrir stóran jafnt sem smáan að komast í og úr Starex (tafla sýnir innri mál).

Í lemjandi rigningu, hvassviðri, myrkri og þoku yfir Hellisheiði fann maður vel fyrir því öryggi sem felst í því að sitja hátt undir stýri á frambyggðum bíl. Aukaljósin, sem felld eru inn í framstuðarann og lýsa út til hliðanna, auka enn við öryggistilfinninguna. Þá er það kostur að í Starex þarf maður ekki að leita að rofunum fyrir aukaljósin. Þeir eru á áberandi stað efst í miðju mælaborðinu. 

Í akstri er Starex áberandi þýður, rásfastur og öruggur. Hljóðeinangrun er góð, bíllinn er þrælstöðugur, svarar vel og tekur ekki upp á neinum óvæntum kúnstum þótt farið sé greitt í beygjum á malarvegi, jafnvel ekki þótt malarvegurinn sé vondur. Í borgarakstri er bíllinn merkilega lipur og vegna þess hve hátt maður situr og þess hve vel hann leggur á, er auðvelt að leggja honum í venjuleg stæði.

Útsýn úr bílnum er frábær fram á við til hliðar og niður, bæði vegna þess hve framrúðan er stór og einnig vegna þríhyrndu hliðarrúðanna framan við framdyrnar. Baksýnisspeglar eru stórir og báðir rafstilltir.

INNRÉTTING
Svona bíll hlýtur að vera draumur flestra barnafjölskyldna. Eftirfarandi lýsing á innréttingunni ætti að skýra hvers vegna: Auk tvennra dyra og skuthlera sem opnast upp eru á Starex stórar hliðardyr hægra megin með rennihurð. Innstigsþrep eru við allar dyr og yfir þeim og yfir hverri sætaröð eru handarhöld auk handarhalda á fremri dyrastaf að framan. Í framhurðum eru rafknúnar rúður en 3 gluggar á farþegarými eru á lömum og má opna þá út að aftanverðu til loftræstingar.

Í bílnum eru 3 sætaraðir. Í öftustu röð er sæti  fyrir 3. Það er tvískipt og má reisa hvorn helming upp og til hliðar. Í miðjunni eru tveir stólar sem stilla má fram eða aftur og snúa að vild. Öll sætin eru með armhvílu sem má slá upp. Þriggja punkta bílbelti eru fyrir hvert sæti og fyrir bílstjóra og farþega í framsæti er axlarhæð beltanna stillanleg. Aftan við öftustu sætaröðina er rúm fyrir 2 ferðatöskur. Á milli fremstu tveggja sætaraða er breitt bil (330 mm). Enginn hæðarmunur er á gólfi við fremstu og öftustu sætin og hæðin inni í bílnum er rúmlega 1,3 metrar.  Það þýðir að farþegi í framsæti (eða bílstjóri) getur farið aftur í bílinn án þess að fara út eða farið inn og út um hliðardyrnar.

Öll sætin eru vel bólstraðir og þægilegir stólar með stillanlegan bakhalla og bak sem fella má aftur. Því er hægt að mynda flutningsrými eftir þörfum hverju sinni. Bílstjórastóllinn er að auki með stillanlegan stuðning fyrir mjóhrygginn. Rafhitaðan bílstjórastól má fá gegn aukagjaldi. Þeir sem sitja í stólunum í miðröðinni sjá lítið sem ekkert fram fyrir hnakkapúðunum á framstólunum en útsýn er hins vegar góð vegna stórra hliðarglugga.  Hjólskálar eru ekki til neinna trafala í þessum bíl, fótarými er hvergi teppt þeirra vegna.

Starex dregur dám af þeim fjölskyldubílum sem náð hafa hvað mestum vinsældum á bandaríska markaðnum. Í raun er bíllinn ekki frambyggður í eiginlegri merkingu, fremur mætti segja að húddið sé innan við framrúðuna. Stærsti kostur þessa lags er straumlínan en vindviðnám er með minnsta móti. En fleira fylgir þessu lagi og hafa hönnuðir Hyundai nýtt þá möguleika á haganlegan hátt.

Sem dæmi má taka flata rýmið ofan á mælaborðinu. Það er tæpur hálfur annar metri á breidd og um þriðjungur úr metra á breidd (340 mm) eða réttara sagt dýpt því þetta er hilla. Og þessa hillu má nota til að breiða úr landabréfum, til að leggja frá sér nesti þar sem áð er o.s.frv. En ég er illa svikinn ef ýmis fyrirtæki og t.d. verktakar, eiga ekki eftir að uppgötva þennan kost og möguleikana á geymslu mælitækja á milli framstólanna. Með þetta frálagsrými getur eftirlitsmaður eða tæknimaður verktaka ekið um með öll sín gögn til reiðu, m.a. stórar teikningar (A1), möppur, handbækur o.fl. og þarf ekki að hafa áhyggjur af að allt sópist ofan af mælaborðinu í næstu beygju.

Við flutning kemur sér vel að dyrnar aftast á bílnum eru nánast jafn breiðar og flutningsrýmið og að afturhlerinn opnast ekki upp fyrir þaklínu. Innan á hleranum er griptaumur sem gerir hverjum sem er kleift að loka honum.

Í bílnum eru fjarstilltar samlæsingar tengdar þjófavörn.  Bílnum fylgir útvarpstæki með snælduspilara en neðan við það er rými sem mætti nota fyrir diskspilara. Hljómburður er góður enda góð hljóðeinangrun en bíllinn er allur teppalagður. Innilýsing (3) má stilla á flúrljós. Haldarar fyrir drykkjarílát eru við hvern stól auk geymsluvasa og hanskahólf í mælaborði er í stærra lagi.

Það tekur miðstöðina dálítinn tíma að hita upp kaldan bílinn en síðan heldur hún ágætum hita. Aftur í bílnum geta farþegar stillt hita og blástur en aukablásari er fyrir farþegarýmið og má einnig gangsetja hann með hnappi í mælaborðinu.

Aðalljósin eru með ferns konar hæðarstillingu til að mæta mismunandi hleðslu. Í mælaborðinu eru hraða-, veg-, snúningshraða-, eldsneytis- og hitamælir. Rofar fyrir ljós og þurrkur/letingja/sprautur eru í sprotum við stýrishjólið sem er með stillanlegan halla. Til að ná svisslyklinum úr er honum ýtt inn eftir að drepið hefur verið á vélinni og snúið um eitt þrep rangsælis (enginn lykilhnappur). Afturrúðuhitarinn er gangsettur með hnappi í mælaborði og fer sjálfkrafa af þegar drepið er á vélinni.

ANNAR BÚNAÐUR
Hyundai Starex er búinn öllum helstu þægindum og er það innifalið í verðinu. Auk þess sem upp hefur verið talið er lok olíugeymis opnað innanfrá. Olíugeymirinn sem rúmar 65 lítra er uppi undir botni fyrir framan vinstra afturhjólið.

Varahjólið er í grind undir bílnum að aftan, verkfæri í geymslubakka undir hægri framstól en tjakkurinn í hólfi aftast í hægri hlið. Innifalið í verði er ennfremur 2 loftpúðar fram í og ABS-læsivörn. Gegn aukagjaldi er hægt að fá Starex með einni eða tveimur topplúgum.

KOSTNAÐARATRIÐI SEM SKIPTA MÁLI
Hver er munurinn á reksturskostnaði dísil- eða bensínbíls? Af dísilbíl má greða þungaskatt annars vegar sem fast árgjald en hins vegar ákveðna upphæð fyrir hvern ekinn kílómetra samkvæmt mæli (mælirinn kostar aukalega og ísettur innan við 30 þús. kr. m.vsk.). Árleg notkun bílsins, í eknum km, og eigin þyngd hans ráða því hvor kosturinn er hagkvæmari. Í töflunum sem hér fylgja á eftir hafa þessi gjöld verið reiknuð út ásamt eldsneytiskostnaði. Byggt er á upplýsingum frá Tollstjóranum í Reykjavík varðandi þungaskatt og bifreiðagjöld þann 18/10/1999 og verð á eldsneyti hjá Skeljungi hf. á sama tíma. Vakin er athygli á að meðaleyðsla, sem notuð er við kostnaðarútreikning í eftirfarandi dæmum, er annars vegar mæld hjá dísilbílnum í prófunarakstri (óhlaðinn en ekki sparakstur) en hins vegar áætluð hjá bensínbílnum. Eru m.a mælingar greinarhöfundar á eyðslu annara bíla hafðar þar til hliðsjónar. Hvort tveggja er á ábyrgð greinarhöfundar og notað með þessum fyrirvara.

www.bl.is

Til baka á forsíðu