|
Nýr Saab 9-3 Turbo Leó M. Jónsson
vélatæknifræðingur Sú var tíðin að Saab og Volvo voru jafnir
keppinautar hérlendis. Enn eru margir Saab 900 í notkun en gerast nú
gamlir. Saab 9000 virðist ekki hafa haft burði til að halda merki Saab
á lofti og nýr 900 og 9-5 ollu vonbrigðum.
Á þessu getur orðið breyting með Saab 9-3 Turbo. Í Skandinavíu og í Bandaríkjunum á Saab marga
trygga kaupendur. Í Svíþjóð er sagt að sölumaður sem ekki eigi sjálfur
Saab selji ekki marga Saab. Það kann að vera ein
af ástæðum þess hve Bílheimum hefur gengið illa að selja
Saab hérlendis - því verðið hefur verið jafnvel hagkvæmara
hér en í Danmörk og Noregi borið saman við verð á
keppinautum. Þeir sem hafa átt Saab 900 (m.a. greinarhöfundur
sem hefur átt fleiri en einn) eru flestir sammála um að hann sé mjög
sérstakur bíll - bíll með sterkan karakter og eigi engan sinn líka og
ef til vill er slík sérstaða ekki til þess fallin að efla hag
bílaframleiðanda til lengri tíma. Saab-Scania lenti í miklum
rekstrarörðugleikum upp úr 1990 sem leiddu til þess að GM keypti
helming hlutafjár fólksbíladeildarinnar og er því ráðandi aðilinn.
Ætla mætti að þá hefði erfiðleikum Saab lokið en svo varð
ekki. Þótt Saab hefði endurbætt hinn ,,Fiat-hannaða"
9000 með árvissum breytingum og tekist að gefa honum einhvern karakter
undir lokin, fylgdi þeim bíl ,,Fiat-draugurinn" frægi - ryðið.
Saab vantaði bíl með séreinkenni til að taka við hlutverki 900 en
hafði ekki fjárhagslegt bolmagn til að þróa og hanna nýjan bíl. Í
stað þess að leggja fyrirtækinu til nægt fé ákváðu
,,baunateljarar" GM að nota Opel Vectra-hjólbotn fyrir nýjan Saab
900. Afleiðingin varð Saab 900 sem kom fyrst af árgerð 1994 (gamli 900
var áfram framleiddur sem blæjubíll það ár) sem uppfyllti ekki þær
gæðakröfur sem eigendur Saab 900 höfðu vanist enda var þessi bíll nær
því að vera einhvers konar GM sambræðingur frekar en ekta sænskur
Saab. Sama átti sér stað með fyrstu 9-5 bílanna þótt
gæðum þeirra væri ekki eins áfátt. Saab lenti í gríðarlegu basli
við að selja fyrstu nýju 900 og 9-5 bílana á því verði sem það
vildi fá fyrir þá þar sem þeir höfðu lítið meira að bjóða en töluvert
ódýrari bílar. Mistökin lágu m.a. í því að amerískir stjórnendur sem settir voru yfir Saab vanmátu bæði þá markaðshollustu sem sænskur Saab átti í Evrópu og Bandaríkjunum og þá sérþekkingu og reynslu sem sænskir tæknimenn bjuggu yfir. Það var ekki fyrr en eftir milljarða tap að þessir náungar sáu ljós!
Nýr Saab 9-3 Turbo kostar frá 2,65 mkr (150 ha beinskiptur).
Hann á marga keppinauta því flestir framleiðendur bjóða stóra fólksbíla
í sama verðflokki. Sjálfskiptur (sem ég veldi) 185 ha 9-3 Turbo kostar
3,3 mkr. Einhverjum kann að finnast verðið hátt en eftir að hafa skoðað
þennan bíl og borið saman við suma keppinauta spái ég því að verðið muni
ekki draga úr sölumöguleikunum. Ein af ástæðunum fyrir þessari fullyrðingu
minni er að þessi nýi Saab 9-3 Turbo
er þræltöff bíll, áberandi vandaður og ótrúlega vel búinn - og
hann hefur kraftinn sem seldi gamla Saab 900 Turbo og selur reyndar enn
því sá gamli Turbo er enn eftirsóttur notaður bíll í Bandaríkjunum.
Allt
lagt undir Í júlí 2002 skoðaði fyrsti hópur blaðamanna nýja
Saab 9-3 Turbo í kynningarmiðstöð Saab Automobile í Frösundavík
skammt norðan Stokkhólms en á næstu mánuðum mun þúsundum
starfsmanna Saab-umboða um víða veröld verða boðið til Frösundavíkur
að skoða gripinn og prófa. Þessi nýi bíll á að tryggja framtíð Saab
Automobile - hvorki meira né minna. Aldrei í sögu fólksbílaframleiðslu
fyrirtækisins (en hún hófst 1950 með Saab 92) hefur jafn mikið verið
lagt undir við undirbúning og þróun nýs bíls og GM hefur greinilega
skipt um skoðun því í stað þess að leggja áherslu á að nýta staðlaða
hluti frá Opel og stýra hönnunarvinnunni (telja baunirnar) hefur það
gefið tæknimönnum Saab frjálsar hendur um hönnunina og fjármagnað dæmið.
Það fer ekkert á milli mála að hjá Saab er litið á 9-3 Turbo sem bílinn sem á að bjarga fyrirtækinu í bókstaflegri merkingu. Starfsmenn Saab eru sannfærðir um að það gangi eftir og, eftir að hafa kynnst þessum nýja Saab, kæmi mér ekki á óvart þótt svo verði.
Athyglisverðir
eiginleikar Saab nefnir nýja 9-3 Turbo ,,Sport Saloon" og
skírskotar með því beinlínis til Jaguar MkII og gerir það með
nokkrum rétti - þetta er bíll með meiri sportlega eiginleika en
flestir fólksbílar geta státað af og hann hefur sömu hljóðlátu mýktina
sem lengi hefur verið aðalsmerki Jaguar. Á meðal þess sem þessi nýi
Saab Turbo hefur umfram fyrirrennarann er tvöfalt meiri snerilstyrkur og
það finnst greinilega í akstri. Til að skýra betur
snerilstyrk skal bent á að Benz-fólksbílar hafa löngum haft
meiri snerilstyrk en aðrir bílar og er hluti af því sem nefna mætti
,,sér-Benz- tilfinningu og margir munu þekkja. Þessi eiginleiki er áberandi
í Saab 9-3 Turbo - snerilstyrkurinn gerir það að verkum að fjöðrunin
tekur stærstan hluta þeirra krafta sem verka frá veginum og einangrar
yfirbygginguna bæði hvað varðar hreyfingu og hljóðleiðni: Þessi bíll
líður áfram á hljóðlátan, mjúkan og þægilegan hátt án þess að
vera svagur. Þennan undirvagn hafa tæknimenn Saab hannað og þróað. Hluti af skýringunni liggur í því að Saab notar
álblöndu í hjólastellið að framan til að minnka fjaðrandi þyngd
hjólanna auk þess sem hjólfestingar einangra veghljóð vel. Að aftan
er 4ra punkta fjöðrun sem gerir það að verkum að hjól vísa inná
við þegar þungi leggst á þau í beygju og afturhjólin hjálpa þannig
við að stýra og auka rásfestu. Eitt af einkennum Saab, sem alltaf hefur verið framdrifinn, er undirstýring en þá skrikar bíllinn til að framan þegar honum er ofboðið í beygju. Þessi nýi sver sig í ættina. Kosturinn við hegðun Saabsins í kröppum beygjum á miklum hraða er sá að sé létt á bensíngjöfinni hættir hann skrikinu um leið. Það eru því engra óvæntra uppátækja að vænta í þessum Saab.
Og
eins og vænta má .... Það er áreiðanlega ekki ofmælt að nýi Saab 9-3
Turbo sé einn öruggasti bíll í heimi, a.m.k. í þessum verðflokki.
Auk þess að vera búinn hliðarárekstrarvörn, höggdeyfandi
fram- og afturhluta, öryggisloftpúðum af hefðbundinni gerð og sjálfvirkum
beltastrekkjurum eru hliðarloftpúðar í höfuðhæð í hliðum bílsins
(gardínur). Greinilegt er að Saab stefnir á 5 stjörnur í NCAP-prófinu
þegar þar að kemur. En öryggisbúnaðurinn er ekki þar með upp talinn því í þessum bíl er flestur sá rafeindabúnaður sem aukið getur öryggi í akstri. Þar má nefna ABS-bremsur með rafeindastýrðri átaksjöfnun (EBD). Sérstakt öryggiskerfi tekur fram fyrir hendur bílstjóra skapist hætta af aksturslagi hans og beitir til þess bremsum og inngjöf. Þetta kerfi sem nefnist ESP (Electronic Stability Programme) má aftengja með hnappi. Þessum kerfum til viðbótar er CBC (Cornering Brake Control) sem á að tryggja að full stjórn sé á bílnum í beygjum auk spólvarnar, TCS (Traction Control System).
Nýjar
vélar Tæknimenn Saab voru með í að þróað nýju vélarnar
sem eru að grunni EcoTec-vélar frá Opel. Nýju vélarnar eru gjörólíkar
hallandi Saab/Triumph-vélinni sem var í gamla 900-bílnum. Hvort þær
koma til með að endast eins stórkostlega og sú gamla gerði
finnst mér reyndar ótrúlegt - en hver veit ? Þetta eru
slagstuttar hraðgengar 4ra sílindra 16 ventla-vélar með tvo keðjuknúna
ofanáliggjandi kambása. Vélarnar eru allar búnar pústþjöppukerfi
(turbo). Allar eru vélarnar með 2ja lítra slagrými en eru í 3 útfærslum,
150, 175 og 210 hö við
5500-6000 sn/mín. Hámarkstog er 240, 265 og 300 Nm við 2500-3000 sn/mín. Af einhverjum ástæðum nefnir Saab 150 ha gerðina
1.8t þótt hún sé eins og hinar með 2ja lítra vél. Vélstýrikerfið
er ekki frá Bosch, eins og búast hefði mátt við, heldur hannað og
framleitt af Saab. Snerpa er 8,2-10 sek frá kyrrstöðu í hundrað. Hámarkshraði
er 216-235 km/klst. Það segir talsvert um tæknistig þessara turbóvéla
að eyðsla þessa kraftmikla bíls á þjóðvegi er innan við 7 lítrar
á hundraðið. Saab 9-3 Turbo er boðinn með 5 gíra kassa eða 5 gíra
sjálfskiptingu. Athygli vekur hve hátt drifhlutfallið er með
beinskipta kassanum en það dregur áberandi úr viðbragði á ferð.
Ekki verður vart við þetta með sjálfskiftingunni. Með sjálfskiptingunni
fylgir kerfi sem Saab nefnir Sentronic en valhnappar skiptingarinnar eru
í stýrishjólinu. Með viðbragðið í huga og þá staðreynd að bíllinn
eyðir sáralítið meiru með sjálfskiptingunni veldi ég hana hiklaust,
ekki síst vegna þess hve tæknimönnum Saab hefur tekist að samhæfa
skiptinguna og pústþjöppukerfið. Ef til vill gengur það eftir að íslensk stjórnvöld
gerist nútímaleg og breyti verðmyndun eldsneytis þannig að dísilskatturinn
verði felldur niður 2004 og dísilolía seld á svipuðu verði og bensín.
Þá skal haft í huga að þessi nýi Saab 9-3 Turbo er fáanlegur með
öflugri 2,1 lítra 16 ventla turbódísilvél. Hún er 115 hö við 4300
sn/mín og með henni eyðir bíllinn innan við 5 lítrum á hundraðið
í lengri akstri. Afar
vönduð innrétting Mælaborðið er ekta Saab - rís eins og bergstál fyrir framan mann; mætti segja mér að stuttvaxnir yrðu ekki alltof ánægðir með útsýnið. Mælarnir eru greinilegir og á réttum stað, stýrishjólið hæfilega stórt með hallastillingu, stórt hanskahólf, drykkjahaldarar sem hljóta að vera ekta sænsk hönnun og nauðsynlegar hirslur og hólf, meira að segja hólf fyrir geisladiska og haldara fyrir farsímann! Eins og vænta mátti af Saab er svissinn í stokknum á milli framstólanna en, sem betur fer, læsir hann ekki gírstönginni lengur um þjófavörnina sér rafeindakerfi. Þá er það einnig ekta sænsk hönnun að hafa íssköfuna fellda inn í miðjustokkinn. Rúðuvindur eru rafknúnar að sjálfsögðu. Veltistýri, hraðastillir, loftkælikerfi og alls konar annar búnaður er fáanlegur.
Framstólarnir eru eins og Saab var von og vísa í algjörum
sérflokki. Þeir eru með hitun í setu og baki og með allar hugsanlegar
rafstillingar. Þessir stólar eru ,,orthopedisk" hönnun sem styðja
við alla hluta líkamans á réttan hátt og hljóta að vera kjörnir fyrir
bakveika - betri stólar gerast ekki í bílum. Þá er það nýjung að í þessum
Saab 9-3 Turbo er einnig hitun í aftursætinu. Rými er mikið og vel fer um mann undir stýri sem
og í farþegastólnum. Aftur í er meira rými en maður á að venjast -
jafnvel í stærri bílum. Bæði fram í og aftur í situr maður hæfilega
hátt til að hafa góða útsýn. Aftursætið er tvískipt 60/40 og
fellanlegt en í því eru 2 innfelld barnasæti sem sett eru upp með
einu handtaki. Ég tók sérstaklega eftir því að mælaborðið
sjálft er vandaðra heldur en það sem var í gamla 900 sem var áberandi
plastlegt. Þá er það tvímælalaust til bóta að stóri flöturinn frá
brún mælaborðsins að framrúðunni er ekki kolsvart eins og í gamla
900 (sem hitaði eins og kolaofn í sólskini) heldur ljósleitt.
Helstu
mál Nýi Saab 9-3 Turbo er frekar stór 4ra dyra bíll.
Lengdin er 4629 mm, breiddin 2011 mm (með speglum) og hæðin 1415 mm.
Farangursrýmið er 425 lítrar og miklu meira séu sætin felld. Eigin þyngd er 1440-1490 kg. Í upplýsingum með bílnum er að finna viðhalds-
og þjónustutöflu. Þar rak ég augun í að smurolíuskipti á vél
eigi að vera á 30 þús km. fresti. Ef til vill er þetta orðið atriði
sem selur í augum einhverra en er það ekki mínum augum. Samanburður
við keppinauta Í stað þess að fara út í miklar lýsingar á frábærum
aksturseiginleikum Saab 9-3 Turbo finnst
mér líklegra til árangurs að bera hann saman við þá bíla sem ég
tel að verði helstu keppinautar. Audi A4 er glæsilegur og með stíl en hann er ekki eins
þægilegur, ekki jafn snarpur né
með jafn góða aksturseiginleika og Saab 9-3 Turbo. BMW 300 er dæmigerður afturhjóladrifsbíll með sportlega
og skemmtilega aksturseiginleika en hann er hvorki jafn þægilegur né stöðugur
í akstri og Saabinn auk þess sem hann er dýrari þegar komið er upp í
jafn aflmikla vél. Benz C-Class er allt öðru vísi bíll og langt frá því að
vera jafn sprækur - hann hefur ekkert umfram Saabinn, að mínum dómi,
nema ef til vill Benz-ímyndina. Volvo S60 nær ekki neinum af eiginleikum Saab 9-3 Turbo og er
t.d. mun þrengri aftur í. Lexus IS200 er líklega sá eini sem stæði uppi í hárinu á Saab 9-3 Turbo hvað varðar aksturseiginleikana en hann er hastari og ekki eins vel hljóðeinangraður auk þess sem hann hefur ekki upp á sambærilegar vélar að bjóða.
|