MARKAÐSTORG LESENDA VEFSÍÐU LEÓS

Seljendum og kaupendum bíla er bent á að á vef Umferðarstofu (www.ust.is) og hjá skoðunarstöðvum má nálgast eyðublöð fyrir sölutilkynningar. Mikilvægt er að skráður eigandi bíls undirriti sölutilkynningu í viðurvist 2 votta. Jafnframt skal á það bent að eigendaskipti fást ekki skráð nema viðkomandi bíll sé veðbandalaus eða að sýnt sé fram á að veðhafi samþykki kaupin (yfirtaka o.s.frv.). Viðskipti sem stofnast til vegna auglýsingar á þessari vefsíðu eru að öllu leyti á ábyrgð viðkomandi seljanda og kaupanda. Mælt er með því að fólk notfæri sér þjónustu löggiltra bílasala við bílasölu, bílakaup og bílaskipti.

Vefsíða Leós aðstoðar með textagerð (leiðréttir stafsetningu o.þ.h.). Upplýsingar þarf að senda á leoemm(hjá)simnet.is
Tengund, gerð (útfærsla, dyrafjöldi, sérbúnaður), árgerð, vélarstærð, gírbúnaður, númer á skoðunarmiða, notkun (í km) + aðrar upplýsingar sem talið er skipti máli.

ATHUGIÐ SÉRSTAKLEGA! Bjóðið lægsta verð sem kemur til greina (miðað við staðgreiðslu) en ekki ásett verð með tilheyrandi kjaftæði og töfum (nóg er af öðrum vefrsíðum fyrir svoleiðis gutl). Ef þið viljið ekki gefa upp hve kaupin geta verið hagstæð óskið þá eftir tilboði og gefið upp hæsta tilboð sem borist hefur - en þó of lágt.
Seljandi áskilur sér rétt til að taka hvaða tilboði sem er eða hafna öllum. Kaupandi áskilur sér rétt til að takmarka tilboð sitt við ákveðinn gildistíma, taki hann það fram. Að öðrum kosti stendur auglýsingin 3 mánuði og tekið fram hvort viðkomandi bíll er rkeyptur eða seldur.

Mynd er alltaf til bóta en ekki skilyrði. Þeir sem leita að einhverjum sérstökum bílum geta auglýst eftir þeim hér - ýmist með símanúmeri, netfangi eða óskað eftir því að Vefsíða Leós komi upplýsingum til skila.

Ath. Ljósmyndir þarf að merkja og skulu þær sendar á sérstakt netfang: leo(hjá)leoemm.com

Skráning bíla á Markaðstorg Vefsíðu Leós er ókeypis fram að næstu áramótum.

Aftur á aðalsíðu leoemm.com
Þeim sem eru að leita að varahlutum í jeppa bendum við á www.4x4.is
Tilv.

AMC CJ5 1978

 

Til sölu AMC Jeep CJ5 árgerð 1978 (endurbyggður 1992).
Vél: 258 CID (4,2 lítra) 6 sílindra.
Kassi 4g T18
Millikassi Dana 20
Afturhásing: Dana 44 (úr IH Scout 1974)
Framhásing: Dana 30 (í bílnum) og Dana 44 (fylgir) ósamsett með öllu sem til þarf.
Hlutföll: 4,56/ARB-loftlæsingar

Frekari upplýsingar um bílinn og það sem fylgir honum eru á tenglinum
leoemm.com/bau01.htm

Verð: Tilboð:
(Ath. þetta selst allt í einum pakka en engir hlutir sér).

Eyjólfur: 898 6979

001

Þessi ljósmynd sýnir 1982 árgerð af sams konar gerð (XLT eða XLT Lariat.
Ljósmynd
:

http://cgi.ebay.com.au/ws/eBayISAPI.dll?ViewItem&item=30026442882

„ALVÖRU-BRONCO’’
Til sölu Bronco XLT 1983 (lúxusútfærsla). Vél V8 351 (5,8 lítra) bensín og C6 sjálfskipting. Bíllinn er komplett, allur upprunalegur, óskemmdur, í gangfæru ástandi en þarfnast sprautunar. Upprunalegt króm á stuðurum og listum óskemmt - einnig upprunalegar krómfelgur - óskemmdar. Litur: Brúnsanseraður og gulur.

Verð: Tilboð

Upplýsingar gefur Haukur í síma 840 1550

002

 

HONDA Fjórhjól

Honda TRX 400cc árg. 2004, Yosimura pústkerfi, protaper stýri, nerfbars, Hot cams, Ný búið að endurbyggja hedd og mótor; nýr stimpill + hringir, sílinder boraður o.fl. Afturdekk nýleg og framdekk ágæt.

Tilboð óskast
Hæsta tilboð núna: 365.000. of lágt.

Upplýsingar: 898 6979

003