|
Upplýsingar um höfund vefsíðunnar: Leó M. Jónsson er iðnaðar- og vélatæknifræðingur. Heimili: Hafnir í Reykjanessbæ. F.d og ár: 7. mars 1942. Fæddur og uppalinn: Reykjavík. Menntun: Að skyldunámi loknu: Bankamannaskóli Íslands 1962. Vélskóli Íslands 1964. Bergens Tekniske Skole, Driftsteknisk Linje 1966. Stockholms Tekniska Institut : Tæknifræðipróf 1969 frá 3 skorum, þ.e. vélatækni, mótortækni og iðnaðartækni. AGB Stockholm. Diplom, CAV Serviceskolan 1969. Svenska MTM Föreningen. Diplom í vinnurannsóknum 1969. General Motors Nordiska AB, Stokkhólmi, Service-diplom, General Motors Institute, (sú stofnun nefnist nú GM TechI) MSA-Diplom (Service Adminstrtation) 1970. Störf: Hamar hf. og Stilliverkstæðið Dísill: 1960-1963, við dísilvélaviðgerðir og stillingar. Landsbanki Íslands, Austurbæjarútibú: 1963-1966. Íslenska álfélagið hf; 1969-1971, tæknifræðingur í hönnunardeild. Stýring sf. Véla- og framleiðslutækni: 1971-1973, ráðgjafi á sviði iðnaðar- og framleiðslutækni. Kaupmannasamtök Íslands: 1973, við hagræðingarráðgjöf og hagrannsóknir. Plastprent hf. 1973-1974; hagræðingarstörf á framleiðslusviði. Gosefnanefnd Iðnaðarráðuneytisins; 1975 við perlusteinsverkefni. Iðnþróunarstofnun Íslands (sem breyttist í Iðntæknistofnun); 1976-1979, deildartæknifræðingur við verkefnastjórnun, iðnþróunaráætlanir og upplýsingamiðlun. Skrifstofutækni hf. 1979-1981; framkvæmdastjóri. Ráðgjafarstörf á eigin vegum á sviði upplýsinga- og tölvutækni: 1981-1985. Útgáfufélagið Fjölnir hf; 1985-1987, ritstjórn Tölvublaðsins og Bóndans. Útgáfufélagið Fróði hf; 1987-1997, ritstjórn Bílsins, Bóndans og Viðskipta- og tölvublaðsins. Tímaritið Bíllinn: 1987-1999, ritstjórn og rekstur í samvinnu við Humal hf. Ráðgjafarstörf á eigin vegum frá 1999. Kennsla: Vélskóli Íslands; 1974, stundakennari. Tækniskóli Íslands; 1975-1977, stundakennari. Meistaraskóli Iðnskólans í Reykjavík; 1978, stundakennari. Stjórnunarfræðslan (Iðnaðarráðuneytis og HÍ) ;1975-1981, kennsla í skipulagstækni og vinnurannsóknum á Verkstjórnarnámskeiðum hjá Iðntæknistofnun. Stjórnunarfélag Íslands; 1980, leiðbeinandi á námskeiðum í verkefnastjórnun með CPM/PERTH-tækni. Ritstörf: Greinar í dagblöðum og tímaritum um ýmis efni frá 1974. Fastar greinar um stjórnun og tölvutækni í Frjálsri verzlun 1979-1993. Ritstjóri tímaritsins Iðnaðarmál 1974-1978. Almenn blaðamennska og þýðingarstörf frá 1978. Ritstjóri tímaritsins Viðskipta- og tölvublaðið 1985-1988. Ritstjóri tímaritsins Bóndinn 1987-1992. Ritstjóri tímaritsins Bíllinn 1987-1999. Útgefandi og ritstjóri Vefsíðu Leós (www.leoemm.com) frá 1999. Búseta: Hefur búið í Höfnum frá 1978. Maki: Sigrún Dröfn Jónsdóttir. Staða: Ritari hjá ÍAV í Reykjavík. Fd. og ár: Á Akureyri 3. jan. 1945. Foreldrar maka: Jón Sigurðsson (f. 16/3/1927) og Björg Pétursdóttir (f. 24/3/1923 d. 16/10/2000). Staða þeirra og búseta: Jón Sigurðsson og Björg Pétursdóttir bjuggu í Kópavogi. Aðrar upplýsingar um þau: Jón starfaði sem trompetleikari í Sinfóníuhljómsveitinni og kennir við Tónlistarskólann í Reykjavík. Björg starfaði m.a. við fataframleiðslu. Börn: 1. Jón Orri f. í Täby Svíþjóð 30. maí 1967. Kerfisfræðingur THÍ. Býr í Reykjavík. 2. Björg f. í Reykjavík 21. jan. 1971. Rannsóknamaður og kerfisstjóri. Barn: Leó Ingi Viðarsson f. 25. des. 1997 og Kristófer Kári fæddur 19. des. 2002. Barnsfaðir: Viðar Ingi Oddsson f. á Ísafirði 25. febr. 1976. Býr í Reykjavík. 3. Eyjólfur Leós f. í Reykjavík 27. jan. 1973. Bifvélavirki. Barn: Margrét Eyjólfsdóttir f. 28. sept. 1995. Barnsmóðir: Lóa Kristín Kristinsdóttir f. í Reykjavík 26. apríl 1974. Búa í Njarðvík. Systkyni: 1. Ingunn Jónsdóttir f. í Reykjavík 19. apríl 1943. Íþróttakennari. Eiginmaður Gunnar Þór Kristjánsson vélfræðingur. Búa í Reykjavík. 2. Kristín Jónsdóttir f. í Reykjavík 29. jan. 1946. Ritari. Eiginmaður Örn Jónsson rafvirkjameistari. Búa í Reykjavík. 3. Böðvar Leós f. í Reykjavík 6. nóv. 1956. Myndlistarmaður. Býr í Reykjavík. Foreldrar: Jón Halldór Leós f. á Ísafirði 9. des. 1901. d. 16. febr. 1978. Deildarstjóri í Landsbanka Íslands. Foreldrar hans: Leó Eyjólfsson söðlasmiður og kaupmaður á Ísafirði og Kristín Halldórsdóttir (Halldórs Jónssonar bónda og búfræðings á Rauðamýri við Ísafjarðardjúp). Svanlaug Böðvarsdóttir f. á Laugarvatni 24. des. 1918. F.v. verslunarmaður. Býr í Reykjavík. Foreldrar hennar: Böðvar Magnússon bóndi og hreppstjóri á Laugarvatni og Ingunn Eyjólfsdóttir. Prentaðar heimildir um ætt: A) Móðurætt: Böðvar Magnússon, Laugarvatni: Ævisagan ,,Undir tindum". (Ættartala móðurættar). B) Föðurætt: Arnardalsætt. |